jan 2013

Lausn Helgarkrossgátu Fréttatímans komin á vefinn, svo vil ég mynna á skoðanakönnunin

Það hafa verið góðar undirtektir við þessarri hugmynd sem ég reifa í skoðanakönnuninni en það er í henni skekkja sem veldur mér vandræðum.

Sem er sú að fleiri opna og skoða skoðanakönnunina en svara henni og veit ég ekki hvað ég á að lesa úr því. Er þetta fólk sem ekki hefur áhuga eða hefur enga skoðun á málinu? Mig langar því að biðja þá sem engan áhuga hafa að segja svo að minstakosti, því öll svörin sem ég hef fengið hingað til eru jákvæð en ég get ekki vitað hver skoðun þeirra er sem ekki hafa svarað.

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa svarað og sérstaklega fyrir þær ábendingar sem mér hafa borist sem eru mér alnauðsynlegar ef af þessu verður svo hægt væri að vinna þetta svo flestum líkaði.

Lausn síðustu krossgátu Fréttatímans komin á vefinn

Búin að setja síðustu krossgátu Fréttatímans og lausn hennar á vefinn. Minni á skoðanakönnunina, því hún er ennþá í gangi og þakka öllum þeim sem þegar hafa tekið þátt.

Lausn Helgarkrossgátu Fréttatímans komin á vefinn, svo vil ég mynna á skoðanakönnunin

Það hafa verið góðar undirtektir við þessarri hugmynd sem ég reifa í skoðanakönnuninni en það er í henni skekkja sem veldur mér vandræðum.

Sem er sú að fleiri opna og skoða skoðanakönnunina en svara henni og veit ég ekki hvað ég á að lesa úr því. Er þetta fólk sem ekki hefur áhuga eða hefur enga skoðun á málinu? Mig langar því að biðja þá sem engan áhuga hafa að segja svo að minstakosti, því öll svörin sem ég hef fengið hingað til eru jákvæð en ég get ekki vitað hver skoðun þeirra er sem ekki hafa svarað.

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa svarað og sérstaklega fyrir þær ábendingar sem mér hafa borist sem eru mér alnauðsynlegar ef af þessu verður svo hægt væri að vinna þetta svo flestum líkaði.

Ósk um þátttöku þína í skoðanakönnun

Um jólin birtist í Fréttatímanum heilsíðu krossgáta og síðan myndagáta um áramótin.

Spurningin er, myndir þú vilja fá einu sinni í mánuði svona „mánaðarskammt“ með stærri krossgátu og fleiri tegundum af gátum. Eitthvað eins og miðopnu blaðsins sem þá er hægt að taka út úr blaðinu og vinna í allan mánuðinn?

Hver sem skoðun þín er, þætti mér vænt um ef þú vildir taka þátt í skoðanakönnuninni fyrir mig. Tengill inn á skoðanakönnunina er hér efst hægra megin. Athugið að skoðanakönnunin opnast í sér glugga sem þú lokar svo eftir að þú hefur svarað og þá er þessi síða hér ennþá. Ekki er þörf á að svar öllum spurningunum en að svara þeim öllum hjálpar mér að kanna raunverulegan áhuga fólks á þessarri hugmynd og hvort raunhæft væri að framkvæma hana.

Með fyrirfram þökk fyrir þátttöku þína.

Lausn áramóta myndagátu Fréttatímanns komin á vefinn

Bún að setja áramóta myndagátu Fréttatímanns og lausn hennar á vefinn.